Lífið

"Ég vona að þú fáir ebólu. Ég vona að þú deyir“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Iggy Azalea missti stjórn á sér á dögunum þegar hún fór út í kjörbúð að kaupa í matinn.

Ljósmyndari tók mynd af henni í versluninni og þá brjálaðist söngkonan.

„Ég vona að þú fáir ebólu. Ég vona að þú deyir,“ sagði Iggy við ljósmyndarann eins og heyrist í meðfylgjandi myndbandi. Þá keyrði hún einnig innkaupakerru sinni á hann.

Í myndbandinu sést að það var ljósmyndarinn sem hóf rifrildið en ekki bætti úr skák þegar vinkona Iggy hrækti á hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×