Lífið

Ætlar ekki að láta þvinga sig í að eignast börn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Cameron Diaz prýðir forsíðu tímaritsins Maire Claire. Hún er barnlaus og segist ekki ætla að láta þvinga sig í að stofna til fjölskyldu.

„Við búum í samfélagi þar sem allir eiga börn þannig að þeir vilja að annað fólk eignist börn. Hér er menning sem snýst um að stjörnur séu alveg eins og almúginn þannig að fólk hugsar: Ég á börn, af hverju á hún ekki börn? En ég ætla ekki að gera eitthvað því fólk býst við því frá mér. Ef ég eignast fjölskyldu þá eignast ég fjölskyldu. Ef ég eignast börn þá hugsa ég um þau en ég er ekki manneskja sem finnst að hún eigi að gera eitthvað því fólk býst við því.“

Þá segist Cameron ekkert hafa á móti því að vera allsnakin á hvíta tjaldinu.

„Fólk hefur séð rassinn minn. Ég hef sýnt efri hluta afturendans, ég hef sýnt neðri hlutann. Ég er ekki á móti nekt svo lengi sem það þjónar sögunni. Ég geri hvað sem er ef það er rétt,“ segir leikkonan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×