Lífið

James Franco er stjarnan í nýrri litabók

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mel Elliott er búinn að gefa út nýja litabók sem heitir Colour Me Good James Franco

Eins og nafnið gefur til kynna eru eingöngu myndir af leikaranum James Franco í bókinni en hún er innblásin af Instagram-síðu leikarans sem er oft á tíðum frekar skrautleg. 

Þá er til dæmis hægt að lita James Franco uppí rúmi með kaffi eða James Franco í draggi.

Mel hefur áður gefið út litabækur þar sem innblásturinn er skærustu stjörnur heims en meðal annarra stjarna í bókum hans eru Harry Styles og Benedict Cumberbatch.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×