Lífið

„Þessi hugmynd kom að handan“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kiddi Vídjófluga var gestur Jóns Ársæls í Sjálfstæðu fólki í gærkvöldi á Stöð 2.

Þeir Kiddi og Jón Ársæll skoðuðu meðal annars sjálfbæru verslunina sem Kiddi hefur komið fyrir uppá heiði á Bóndastaðahálsi í Hjaltastaðaþingá en sjálfsalinn er bæði sólarorku- og vindknúinn.

„Þessi hugmynd kom að handa,“ segir Kiddi um sjálfsalann í meðfylgjandi myndbroti en hugmyndin kom til hans árið 2001.

„Ég er tækjaóður enda elska ég þetta alveg,“ bætir hann við. „Þetta er mín ástríða.“

Þá segir hann Jóni Ársæli einnig frá því hvernig óprúttnir aðilar reyndu að brjótast inn í sjálfsalann góða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×