Lífið

Egill Ólafs og Sigmundur Davíð í árshátíðarmyndbandi MR

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stórsöngvarinn Egill Ólafsson og forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, koma við sögu í nýju árshátíðarmyndbandi Menntaskólans í Reykjavík en árshátíð skólans verður haldin hátíðleg þann 16. október næstkomandi í Gullhömrum.

Bollywood-stemning er í myndbandinu en Egill verður í aðalhlutverki á árshátíð skólans þar sem hann treður upp ásamt hljómsveit sinni, Stuðmönnum.

Árshátíðin er eitt helsta stolt menntaskólans og búist er við því að meginþorri þeirra níu hundruð nemenda sem nema við skólann mæti á skemmtunina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×