Lífið

Breytti saklausri útvarpsauglýsingu í eftirhermuveislu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Bjarni deilir auglýsingu fyrir tónleikana Rumours á Twitter-síðu sinni. Tónleikarnir eru til heiðurs sveitinni Fleetwood Mac og fékk Þorvaldur söngvarann Eyþór Ingi til að lesa inn á auglýsinguna.

„Verðið að heyra þetta!!! drengurinn er snillingur,“ skrifar Þorvaldur á Twitter en í auglýsingunni má heyra Eyþór Inga herma eftir sjö landsþekktum einstaklingum: Birni Jörundi, Gylfa Ægissyni, Björgvini Halldórssyni, Jakobi Frímanni, Bubba, Ragga Bjarna og Agli Ólafssyni.

Eyþór Ingi er ansi lunkinn í eftirhermum eins og heyra má í auglýsingunni:








Fleiri fréttir

Sjá meira


×