Lífið

Gummi Ben lýsti úrslitaleiknum á HM í Olsen Olsen og fór á kostum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurður Óli fylgdist grannt með gangi mála á hliðarlínunni.
Sigurður Óli fylgdist grannt með gangi mála á hliðarlínunni.
HM í Olsen Olsen 2014 fór fram í höfuðstöðum DHL í Reykjavík á dögunum en til úrslitaleiknum mættust þeir Guðmundur Viðar Mete og Jóhann Jóhannsson.

Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson lýsti viðureigninni eins og honum einum er lagið og fór einfaldlega á kostum. Sigurður Óli Þorleifsson, knattspyrnudómari dæmdi síðan viðureignina.

Hér að neðan má sjá myndband af fyrsta leiknum í viðureigninni í rimmunni en það var Jóhann Jóhannsson sem fór með sigur af hólmi í mótinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×