Lífið

Meistara Maggi í grenjandi rigningu í Tælandi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Magnús Ingi Magnússon, betur þekktur sem Meistara Maggi, veitingamaður á Texasborgurum birtir stórskemmtilegt myndband af sér á YouTube.

Maggi er staddur á Tælandi en á myndbandi sést hann leita sér skjóls frá úrhellisrigningu í strandborginni Pattaya.

„Svona er þetta búið að vera í hverju hádegi núna í þrjá daga hér á Tælandi,“ segir Maggi í myndbandinu og bætir við:

„Hálftími bullandi rigning. Haldið þið að það sé nú svakalegt.“

Magga líkar dvölin í Pattaya greinilega vel og birtir matarmyndir á Twitter þar sem hann segir Pattaya vera snilld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×