Lífið

"Þú ert svo myndarlegur að ég kem ekki upp orði“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Gwyneth Paltrow hélt fjáröflunarboð fyrir demókrataflokkinn í Bandaríkjunum í bakgarðinum sínum í Los Angeles í gær.

Meðal gesta var sjálfur forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, en alls mættu um tvö hundruð manns í boðið.

Gwyneth ávarpaði gesti boðsins og talaði sérstaklega vel um Obama.

„Ég er einn af þínum stærstu aðdáendum, ef ekki sá stærsti,“ sagði Gwyneth í ávarpi sínu en varð síðan frekar skömmustuleg og eldroðnaði.

„Þú ert svo myndarlegur að ég kem ekki upp orði,“ bætti hún við, viðstöddum til mikillar gleði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×