Lífið

Anne Hathaway ofkældist á Íslandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Anne Hathaway leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýjustu mynd Christophers Nolan, Interstellar.
Anne Hathaway leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýjustu mynd Christophers Nolan, Interstellar. Vísir/Getty
Nýjasta kvikmynd Christophers Nolan, Interstellar, verður frumsýnd þann 7. nóvember nk. Myndin var að hluta til tekin hér á landi en í aðalhlutverkum eru Matthew McConaughey, Anne Hathaway, Jessica Chastain og Matt Damon.

Í ítarlegu viðtali við The Hollywood Reporter segja leikstjórinn og leikararnir frá gerð myndarinnar.

Þar kemur meðal annars fram að það hafi verið nokkrum vandkvæðum búið að flytja 10.000 tonna geimskip til Íslands en landið var notað sem tökustaður fyrir óþekkta plánetu.  

Þá greinir Anne Hathaway frá því að hún hafi ofkælst við tökurnar hér. Hún var þá að leika í atriði sem gerist í ísköldu vatni og var í blautbúningi. Það misfórst þó að loka búningnum alveg svo að vatn lak inn í hann. Hathaway var í vatninu í marga klukkutíma og lýsir tilfinningu svona í viðtalinu:

„Öllum var kalt á þessum tímapunkti. Við vorum búin að vera við tökur lengi og það var ekki eins og mér einni liði illa. Ég var bara sú eina sem leið sérstaklega illa, og ég vildi ekki tefja tökurnar. En svo kom að því að ég var ekki viss um að ég fyndi fyrir tánum [...] og ég var farin að sjá allt í móðu. Þá sneri ég mér að aðstoðarleikstjóranum og spurði hvort hann þekkti einkenni ofkælingar.“

Hathaway lýsti svo einkennunum fyrir honum, hann lét Nolan leikstjóra vita sem keyrði tökurnar áfram til að klára sem fyrst.

Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni þar sem Svínafellsjökull leikur stórt hlutverk.


Tengdar fréttir

Rosalega mikið af Íslandi í Interstellar

Árni Björn Helgason hjá Saga Film er ánægður með hvernig Hollywood-myndin Interstellar kemur út á hvíta tjaldinu. Stjörnurnar myndarinnar voru allar mjög jarðbundnar og langt í frá með einhverja stæla.

Kvikmyndastjörnur koma á laugardag

Interstellar, ný kvikmynd Hollywoodleikstjórans Christopher Nolan, verður að stórum hluta tekin upp hér á landi. Von er á leikurum og aðstandendum myndarinnar hingað til lands um helgina.

Tökum á Interstellar er lokið

Tökum er lokið hér á landi á kvikmyndinni Interstellar í leikstjórn Christophers Nolan. Þær stóðu yfir í um það bil tvær vikur og fóru fram á Kirkjubæjarklaustri.

Damon, McConaughey og Hathaway koma

Kvikmyndastjörnurnar eru á leið til landsins til að vera í tökum kvikmyndar Christopher Nolans -- Insterstellar. Stór verkefni eru í pípunum hjá erlendu deild Saga Film.

Damon mættur í tökur

Matt Damon kom til landsins í dag en hann fer með eitt aðalhlutverka í myndinni Interstellar sem leikstýrð er af Christopher Nolan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.