Sport

Mayweather tapaði milljónum

Floyd Mayweather.
Floyd Mayweather. vísir/getty
Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather hefur verið óspar á að sýna hversu getspakur hann er á netinu. Hann hefur nú loksins sýnt að hann klikkar stundum.

Mayweather setti tæplega 2,5 milljónir króna á leik Pittsburgh og Houston sem fram fór í NFL-deildinni í gær. Hann spáði Houston sigri en Steelers vann leikinn.

Það truflar Mayweather ekki mikið að tapa þessum peningum þar sem hann tók inn nokkra milljarða á síðasta bardaga.

Hann virðist vera spilafíkill en hann lagði tæpar 100 milljónir króna undir á leik Arizona og Oakland fyrr í vetur.

I lost $20k today.

A photo posted by Floyd Mayweather (@floydmayweather) on

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×