Pellegrini hefur áhyggjur af sínu liði fyrir Manchester-slaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2014 08:45 Manuel Pellegrini. Vísir/Getty
Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, viðurkenndi að hann hafi áhyggjur af sínu liði fyrir borgarslaginn í Manchester um næstu helgi eftir að Manchester City liðið datt út fyrir Newcastle í enska deildabikarnum í gærkvöldi. Manchester City hefur þar með tapað tveimur leikjum í röð á stuttum tíma en liðið lá á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og hafði síðan nokkrum dögum fyrr misst unninn leik niður í jafntefli á móti CSKA Moskvu í Meistaradeildinni. „Við verðum að taka á þessu eins fljótt og auðið er," sagði Manuel Pellegrini eftir leikinn í gær en hann nefndi þar skort á trausti og sjálfstrausti innan liðsins. Pellegrini gerði sjö breytingar á liðinu sem tapaði á móti West Ham en Yaya Toure var í hópi tíu landsliðsmanna sem byrjuðu leikinn. „Við erum ekki að spila vel og það vantar meira traust innan liðsins. Við erum líka að fá á okkur of mörg auðveld mörk og nýtum ekki færin okkar," sagði Manuel Pellegrini. „Auðvitað höfum við áhyggjur af þessu. Við unnum engan af þremur leikjum okkar í þessari viku. Við verðum bara að finna lausnina," sagði Pellegrini. „Liðið þarf að finna aftur sjálfstraustið því það er ekkert eðlilegt við það hvernig liðið er að spila í síðustu leikjum," sagði Pellegrini en Manchester City tekur á móti nágrönnum sínum í Manchester United á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira