Íslenski boltinn

Voru það Pepsi-mörkin sem komu Glenn í landsliðið? | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jonathan Glenn.
Jonathan Glenn. Vísir/Andri Marinó
Ísland er langt í burtu frá Trínidad og Tóbagó en frammistaða Jonathan Glenn með ÍBV í Pepsi-deildinni var þó nóg til að koma kappanum í landslið þjóðar sinnar í fyrsta sinn.

Stephen Hart, þjálfari landsliðs Trínidad og Tóbagó, valdi næstmarkahæsta leikmann Pepsi-deildar karla 2014, í 23 manna landsliðshóp sinn fyrir karabíska bikarinn sem fer fram á Jamaíka seinna í þessum mánuði.

Í frétt wired868.com um valið kemur fram að Stephen Hart hafi ekki séð Jonathan Glenn spila á Íslandi síðasta sumar heldur voru það myndbönd með Glenn sem sannfærðu hann um að velja hann í liðið.

Pepsi-mörkin fjölluðu ítarlega um Jonathan Glenn í sumar eins og aðra bestu leikmenn deildarinnar og sýndu að sjálfsögðu öll mörkin hans.

Það er því líklegt að Stephen Hart hafi nýtt sér upptökur úr Pepsi-mörkunum til að sannfærast um að Jonathan Glenn væri einn af þremur bestu framherjum þjóðarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá myndband með mörkum Jonathan Glenn í Pepsi-deildinni í sumar.

Jonathan Glenn skoraði fullt af mörkum í Pepsi-deildinni í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×