Íslenski boltinn

Finnur í Víking

Anton Ingi Leifsson skrifar
Finnur með aðstoðarþjálfara Víkings og formann meistaraflokksráðs.
Finnur með aðstoðarþjálfara Víkings og formann meistaraflokksráðs. Vísir/Aðsend
Finnur Ólafsson er genginn í raðir Víkings, en Finnur lék með Fylki á síðustu leiktíð. Víkingur heldur því áfram að styrkja sig fyrir átökin á næstu leiktíð.

Finnur semur við Víking til þriggja ára, en hann losnaði frá Fylki á dögunum. Finnur hefur spilað í meistaraflokki frá 2003 og spilað 190 leiki fyrir Fylki, ÍBV og HK.

Víkingur leikur í Evrópukeppni á næstu leiktíð, en liðið hefur fengið meðal annars Atla Fannar Jónsson, Hallgrím Mar Steingrímsson og Hauk Baldvinsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×