Viðskipti innlent

Jólabjórinn kominn í Ríkið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jólabjórinn hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi síðustu ár.
Jólabjórinn hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi síðustu ár. vísir/stefán
Sala á jólabjór hefst í verslunum ÁTVR í dag. Samkvæmt reglum vínbúðanna má ekki hefja sölu á jólabjór fyrr en á morgun, 15. nóvember, en þar sem það er laugardagur er gerð undantekning í ár og salan hefst í dag.

Jólabjór hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi á undanförnum árum en salan í fyrra nam 616.000 lítrum. Var það 7,5% aukning milli ára.

Samkvæmt reglum ÁTVR má selja jólabjór til 6. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×