Lífið

Aðfangadagskvöld 1914 og mörgæs sem finnur ástina

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mörgæsin Monty leikur stórt hlutverk í jólaauglýsingu John Lewis.
Mörgæsin Monty leikur stórt hlutverk í jólaauglýsingu John Lewis.
Löng hefð er fyrir því í Bretlandi að stórverslanir kosti miklu til við gerð jólaauglýsinga. Á því er engin undantekning í ár.

Þær sem hafa vakið hvað mesta athygli núna eru annars vegar auglýsing frá Sainsbury‘s og hins vegar auglýsing frá John Lewis.

Auglýsing Sainsbury‘s leitar fanga í fyrri heimsstyrjöldinni og segir sögu frá aðfangadagskvöldi á vígstöðvunum árið 1914.

Auglýsing John Lewis segir svo frá mörgæsinni Monty sem finnur ástina óvænt á jólunum.

Báðar auglýsingarnar má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.