Íslenski boltinn

SönderjyskE íhugar að semja við Baldur

Baldur Sigurðsson.
Baldur Sigurðsson. vísir/daníel
Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, færist nær danska liðinu SönderjyskE með hverjum deginum.

Miðjumaðurinn sterki fór til reynslu hjá félaginu á dögunum og þótti standa sig vel. Félagið hefur áhuga á því að semja við hann.

„Hann stóð sig vel og okkur líst vel á hann. Það gæti vel farið svo að við semjum við hann," segir Lars Söndergaard, þjálfari liðsins.

Þjálfarinn segir að meðal annars þurfi að fylla skarð Hallgríms Jónassonar sem sé á förum en bæði Hallgrímur og Baldur léku með Völsungi á sínum tíma.

Það væri mikið áfall fyrir bikarmeistara KR að missa Baldur sem hefur verið lykilmaður hjá þeim síðustu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×