Tónlist

Rappar um að kýla Lönu Del Rey í andlitið

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Eminem er umdeildur.
Eminem er umdeildur. vísir/getty
Rapparinn Eminem er mjög umdeildur eftir að hann frumsýndi tónlistarmyndband við lagið SHADY CXVPHER en í laginu koma Crooked I, Joe Budden, Yelawolf, Joell Ortiz og Royce Da 5'9 einnig við sögu.

Í laginu rappar hann um að kýla tónlistarkonuna Lönu Del Rey í andlitið og heimilisofbeldisskandal Ray Rice. 

„I’ll punchLana Del Rey right in the face twice, likeRay Rice in broad daylight in the plain sight of the elevator surveillance/’Til her head is banging on the railing, then celebrate with the Ravens,“ rappar Eminem meðal annars.

Rapparinn Azealia Banks er ein af þeim sem hefur tjáð sig um lagið á Twitter.

„En veit Eminem að ég mun persónulega kýla hann í munninn?!“ skrifaði Azealia en eyddi tístinu síðan.

Lana sagðist elska Eminem í viðtali við PopCrush árið 2012.

„Ég fokkíng elska Eminem,“ sagði Lana en Eminem hefur ekki tjáð sig frekar um nýja lagið.

Um fjórðu mínútu má heyra Eminem rappa um Lönu:








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.