Leonardo DiCaprio fertugur: Hans eftirminnilegustu hlutverk Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 11. nóvember 2014 18:00
Stórleikarinn Leonardo DiCaprio fagnar fertugsafmæli sínu í dag en hann er fyrir löngu búinn að sigra hjörtu margra meyja um heim allan. Leonardo byrjaði ungur í leiklistarbransanum en sló fyrst í gegn árið 1992 þegar hann lék á móti Robert De Niro í kvikmyndinni This Boy's Life. Síðan þá hefur hann átt stjörnuleik í hverri stórmyndinni á fætur annarri en aldrei hlotið Óskarsstyttuna eftirsóknarverðu, þó hann hafi verið tilnefndur fjórum sinnum. Þá hefur Leonardo líka verið þekktur fyrir að deita súpermódel, meðal annars Gisele Bundchen og Erin Heatherton en hann og fyrirsætan Toni Garrn hafa verið saman síðan í maí á síðasta ári. Lífið leit yfir nokkur af eftirminnilegustu hlutverkum leikarans. Leonardo bræddi hjörtu stúlkna vestan hafs þegar hann lék heimilislausa drenginn Luke í sjónvarpsþáttunum Growing Pains á árunum 1991 til 1992. Leo vakti heimsathygli árið 1992 þegar að Robert De Niro valdi hann úr hópi fjögur hundruð stráka til að leika aðalhlutverkið í This Boy's Life. Gagnrýnendur lofuðu Leonardo fyrir frammistöðu hans í kvikmyndinni What's Eating Gilbert Grape árið 1993. Í myndinni lék hann fatlaða drenginn Arnie og krækti hann sér í tilnefningu til Óskarsverðlaunanna sem besti leikari í aukahlutverki. Flestar unglingsstúlkur urðu bálskotnar í Leonardo þegar hann lék sjálfan Rómeó í nútímavæðingu Shakespeare-leikritsins Rómeó og Júlía á móti Claire Danes árið 1996. Eftir velgengni myndarinnar valdi tímaritið People hann eina af fimmtíu fallegustu manneskjum í heiminum.Kvikmyndin Titanic frá árinu 1997 sló öll met og allt í einu varð Leonardo einn eftirsóttasti leikarinn í Hollywood. Svokallað „Leo-mania“ greip um sig um heim allan enda skilaði Titanic milljörðum í kassann. Leonardo lék í fimm stórum kvikmyndum á árunum 2000 til 2006, þar á meðal þremur með leikstjóranum Martin Scorsese - Gangs of New York, The Aviator og The Departed. Hann var tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Howard Hughes í The Aviator. Aðra tilnefningu til Óskarsins hlaut hann fyrir hlutverk sitt í Blood Diamond frá árinu 2006. Leonardo og Martin Scorsese leiddu aftur saman hesta sína í fyrra í kvikmyndinni The Wolf of Wall Street. Í henni túlkar Leo verðbréfabraskarann Jordan Belfort og þótti honum takast vel upp. Svo vel að hann fékk tilnefningu til Óskarsverðlaunanna en tapaði fyrir Matthew McConaughey.
Mest lesið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Lífið Er alltaf hrædd Lífið Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Lífið Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Lífið Afsláttur í BYKO fyrir fólk í framkvæmdum Lífið samstarf One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Fleiri fréttir Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Sjá meira