Lífið

Þetta eru algengustu kynlífsfantasíur kvenna og karla

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Lífið á Vísi sagði nýlega frá rannsókn sem framkvæmd var af vísindamönnum í háskólanum í Montreal og birt var í The Journal of Sexual Medicine. Rannsóknin snerist um kynlífsfantasíur beggja kynja og kom í ljós að meirihluta kvenna dreymir um að vera undirgefinn í kynlífi.

Nú hafa vísindamennirnir birt vinsælustu fantasíur bæði kynja samkvæmt rannsókninni sem 1516 fullorðnir einstaklingar tóku þátt í. Völdu þeir sínar eftirlætisfantasíur af lista af 55 fantasíum. 

Algengustu kynlífsfantasíur kvenna:

1. Rómantískt kynlíf (92,2%)

2. Andrúmsloft og staðsetning eru mikilvæg í fantasíum (86,4%)

3. Mig hefur dreymt um kynlíf á rómantískum stað, til dæmis á yfirgefinni strönd (84,9%)

4. Mig hefur dreymt um kynlíf á óvenjulegum stað, til dæmis á skrifstofu eða almenningssalerni (81,7%)

5. Mig hefur dreymt um munnmök (78,5%)

6. Mig hefur dreymt um að veita karlmanni munnmök (72,1%)

7. Mig hefur dreymt um að maki minn frói mér (71,4%)

8. Mig hefur dreymt um að fróa maka mínum (68,1%)

9. Mig hefur dreymt um að stunda kynlíf með einhverjum sem ég þekki sem er ekki maki minn (66,3%)

10. Mig hefur dreymt um að vera undirgefin í kynlífi (64,6%)

Algengustu kynlífsfantasíur karla:

1. Rómantísk kynlíf (88,3%)

2. Mig hefur dreymt um munnmök (87,6%)

3. Mig hefur dreymt um að stunda kynlíf með tveimur konum (84,5%)

4. Mig hefur dreymt um að stunda kynlíf með einhverjum sem ég þekki sem er ekki maki minn (83,4%)

5. Mig hefur dreymt um kynlíf á óvenjulegum stað, til dæmis á skrifstofu eða almenningssalerni (82,3%)

6. Mig hefur dreymt um að horfa á tvær konur njóta ásta (82,1%)

7. Andrúmsloft og staðsetning eru mikilvæg í fantasíum (81,2%)

8. Mig hefur dreymt um að hafa sáðlát á bólfélaga minn (80,4%)

9. Mig hefur dreymt um kynlíf á rómantískum stað, til dæmis á yfirgefinni strönd (78,4%)

10. Mig hefur dreymt um að veita konu munnmök (78,1%)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×