Inter komið áfram í Evrópudeildinni | Úrslit kvöldsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. nóvember 2014 15:27 Pablo Osvaldo fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Næstsíðasta umferð riðlakeppni Evrópudeildar UEFA fór fram í kvöld en ítölsku liðin Inter og Fiorentina eru bæði örugg áfram í 32-liða úrslit keppninnar eftir úrslit kvöldsins. Inter hafði betur gegn Dnipro, 2-1, með mörkum Zdravko Kuzmanovic og Pablo Osvaldo. Inter er með ellefu stig í F-riðli og sex stiga forystu á næstu lið. Fiorentina er með þrettán stig í efsta sæti K-riðils eftir sigur á En Avant Guingamp á útivelli, 2-1. Marko Marin og Khouma Babacar skoruðu mörk Ítalanna á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Rúrik Gíslason spilaði allan leikinn er lið hans, FCK, tapaði fyrir HJK í Helsinki í kvöld, 2-1. Sigurmark Finnanna kom á þriðju mínútu uppbótartímans en tapið þýðir að Rúrik og félagar eiga ekki möguleika á sæti í 32-liða úrslitunum. Dinamo Moskva er komið áfram en liðið er með fullt hús stiga í E-riðli eftir 2-1 sigur á Panathinaikos í dag. Red Bull Salzburg er öruggt með efsta sæti D-riðils eftir sigur á Celtic í kvöld, 3-1, í Skotlandi. Celtic er þrátt fyrir tapið komið áfram í 32-liða úrslitin.Everton og Tottenham eru einnig komin áfram eftir sigra í sínum leikjum. Þá eru Dynamo Kiev, Legia Varsjá, Besiktas og Trabzonspor örugg með sín sæti í 32-liða úrslitum.. Flauta þurfti leik Estoril og PSV í Portúgal af í hálfleik vegna mikils blautviðris en staðan var þá 3-2 fyrir heimamenn í Estoril.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Sjá meira