Myrtar í afbrýðiskasti Samúel Karl Ólason skrifar 20. nóvember 2014 08:08 Kory Alvarado, bar kennsl á systur sínar þar sem þær fundust. Vísri/AFP
Lík hinnar 19 ára Maria Jose Alvarado, ungfrú Hondúras, fannst ásamt líki 23 ára systur hennar, Sofiu, í gær, eftir umfangsmikla leit frá því á síðasta fimmtudag. Þær sáust síðast á leið úr samkvæmi síðastliðið fimmtudagskvöld, er þær stigu upp í bíl Plutarco Ruiz, kærasta sofiu. Mikið rifrildi hófst á milli kærustuparsins, eftir að hún hafði dansað við ókunnugan mann, sem endaði með Ruiz tók upp byssu og skaut Sofiu. Hann skaut Maríu tvisvar sinnum í bakið þegar hún hljóp í burtu. Þetta hefur AP fréttaveitan eftir talsmanni lögreglunnar. Ruiz leiddi lögreglumenn að líkum systranna í gær. Móðir systranna segir Ruiz hafa hringt í sig á föstudagsmorguninn og þóst vera áhyggjufullur. Hann sagði þær hafa farið upp í bíl, með mönnum sem hann þekkti ekki kvöldið áður. Hún sagði dætur sínar hafa átt auðvelt með að treysta fólki. „Þær voru ekki góðar í að meta fólk í kringum sig. Þær voru bara vingjarnlegar og voru að umgangast fólk sem þær höfðu ekki þekkt lengi,“ hefur AP eftir Teresu Munoz. Morð þeirra systra hefur vakið athygli á því vandamáli sem ofbeldi gegn konum er í Hondúras. Morðum á konum hefur fjölgað um 263 prósent frá árinu 2005. „Ofbeldi gegn konum og stúlkum er gífurlega stórt vandamál,“ segir Adriana Beltran hjá Sameinuðu þjóðunum. „Fjölmargar konur láta lífið á þennan hátt, en þar sem þær eru ekki frægar, fá þau mál ekki mikla athygli og engum er refsað.“
Tengdar fréttir Ungfrú Hondúras fannst látin Hún og systir hennar höfðu ekki sést síðan á fimmtudaginn, en hún hefði átt að fljúga til London á sunnudaginn til að keppa í Ungfrú heimi. 19. nóvember 2014 13:42 Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sjá meira
Ungfrú Hondúras fannst látin Hún og systir hennar höfðu ekki sést síðan á fimmtudaginn, en hún hefði átt að fljúga til London á sunnudaginn til að keppa í Ungfrú heimi. 19. nóvember 2014 13:42