Heilsa

Alþjóðlegi alnæmisdagurinn

sigga dögg kynfræðingur skrifar
Vísir/Getty
HIV veiran skemmir ónæmiskerfi líkamans en rétt lyfjagjöf getur haldið veirunni í skefjum svo ekki þróist hún í alnæmi.

 

Það er því hægt að lifa löngu lífi þó viðkomandi sé HIV jákvæð/-ur.

 

HIV getur smitast með blóði og/eða með slímhúð. Í því samhengi er gott að hafa í huga að ýmis kynhegðun er misáhættusöm. 

 

Þannig eru mestu smitlíkurnar ef rifur myndast og veiran ætti því auðvelt aðgengi í blóðrás eins og í endaþarmi þar sem auðveldlega geta myndast rifur eða í leggöngum, sérstaklega ef viðkomandi er á blæðingu, þá er aukin hætta. Munnmök geta einnig falið í sér vissa hættu, sérstalega ef rifur eru í munni og/eða á kynfærum.

Klámleikarinn John Holmes var sýktur af HIVVísir/Skjáskot
Alengar mýtur um HIV:

 

Maður stundaði samfarir með apa og bjó til HIV. (hið rétta er að maður át sýktan apa og þannig smitaðist veiran úr apa yfir í menn)

Þú deyrð fljótt ef þú smitast. 

Þú getur smitast af því að fara í sleik við smitaða manneskju (ATH - ef þú ert með blæðandi sár eða herpes, ekki fara í sleik, að öðru leyti, allt í góðu).

Þú getur smitast af klósettsetu/tannbursta/vatnsglasi.

Þú getur ekki eignast börn.

 

HIV er greint með blóðprufu og þú getur látið framkvæma slíkt á næstu heilsugæslustöð eða á Húð og Kyn.

 

Það eina sem ver gegn HIV í kynlífi er smokkurinn.

 

HIV samtökin á Íslandi halda úti fésbókar síðu og bjóða til smá kaffisamlætis í dag að heimili samtakanna, nánari upplýsingar má nálgast á síðu samtakanna.

Stephen Fry er breskur leikari sem gerði tveggja þátta heimildarþætti um HIV.

 

Hér er fyrri hlutinn



Og hér seinni hlutinn









×