Herrera þarf að mæta fyrir rétt vegna hagræðingu úrslita Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. nóvember 2014 14:00 Ander Herrera. vísir/getty
Ander Herrera, miðjumaður Manchester United, þarf að ferðast heim til Spánar á næsta ári og mæta fyrir rétt þar sem hann verður yfirheyrður vegna gruns um þátttöku í hagræðinu úrslita. Herrera er einn af 28 leikmönnum sem þarf að mæta fyrir réttinn í Valencia, en hann spilaði leik með uppeldisfélagi sínu Real Zaragoza árið 2011 sem verið er að skoða. Javier Aguirra, fyrrverandi þjálfari Zaragoza sem nú stýrir landsliði Japans, og Gabi, núverandi fyrirliði Spánarmeistara Atlético Madrid, eru á meðal þeirra sem verða yfirheyrðir. Real Zaragoza þurfti að vinna síðasta leikinn í spænsku 1. deildinni tímabilið 2010/2011 til að halda sæti sínu í deildinni og gerði það með 2-1 sigri á Levante í lokaumferðinni. Herrera var þá á leiðinni til Athletic Bilbao og gekk í raðir baskaliðsins skömmu eftir að tímabilinu lauk. Grunur lá um að leiknum yrði hagrætt áður en hann fór fram, en Agusto Lendoiro, forseti Deportivo La Coruna sem á endanum fór niður í stað Zaragoza, gaf í skyn að forseti Zaragoza, Agapito Iglesias, ætlaði sér að hafa einhver áhrif á leikinn. Gabi, sem þá var fyrirliði Real Zaragoza, viðureknndi í síðasta mánuði að ákveðin peningaupphæð hafi verið millifærð á bankareikning hans vikunni fyrir leikinn sem verið er að skoða. Hann sagðist hafa verið beðinn um að taka peninginn út og skila honum til forseta félagsins. Ander Herrera er einnig talinn vera einn af sjö leikmönnum sem fengu álíka greiðslu ásamt þjálfaranum Javier Aguirre. Iglesias forseti segir að peningurinn hafi verið bónus til leikmannanna, en Gabi segir að bónusar hafi aldrei verið greiddir út fyrir leiki. Hann hafi átt að skila peningnum til forsetans. Zaragoza var við það að að fara í greiðslustöðvun á þessum tíma og sagði Gabi enn fremur að leikmennirnir hafi einfaldlega verið að gera það sem þeim var sagt. Gabi var upphaflega yfirheyrður í október en þarf nú að fara líkt og Ander Herrera og fleiri til Valencia í byrjun næsta árs og vitna fyrir rétti.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira