Tónlist

The Beach Boys snúa aftur

David Marks, Brian Wilson og Al Jardine, ásamt Jeff Beck eftir góða skemmtun
David Marks, Brian Wilson og Al Jardine, ásamt Jeff Beck eftir góða skemmtun Vísir/Getty
Hljómsveitin The Beach Boys ætlar svo sannarlega að láta á sér kveða í sumar og í haust og hafa tilkynnt tónleikaferðalag um Bandaríkin og Evrópu. Tilefnið er að fimmtíu ár eru síðan að smellurinn Fun, Fun, Fun kom út og vann frækna sigra.

Ballið byrjar þann 25. maí næstkomandi á Belvedere hátíðinni í Louisville í Kentucky og tekur svo við langt ferðalag. Fyrrum meðlimir sveitarinnar, Al Jardine og David Marks ætla einnig heiðra almenning með nærveru sinni á tónleikum á Jones Beach á Long Island í New York þann 5. júlí næstkomandi.

Jeffrey Foskett verður með á tónleikaferðalaginu en hann hefur leikið reglulega með sveitinni síðan árið 1981, hann kemur til með að leysa Christian af, sem er sonur Mikes Love.

Talið að The Beach Boys ætli að tilkynna fleiri tónleikadagsetningar síðar á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.