Íslenski boltinn

Gary til reynslu hjá Chesterfield

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gary í leik KR og Celtic í sumar.
Gary í leik KR og Celtic í sumar. Vísir/Arnþór
Gary Martin mun fara síðar í mánuðinum til Englands þar sem hann verður til reynslu hjá enska C-deildarliðinu Chesterfield. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.

Gary varð markakóngur Pepsi-deildar karla en hann er samningsbundinn KR til loka næstu leiktíðar. Gert er ráð fyrir að hann taki þátt í æfingaleik gegn Leeds.

„Ég er mjög spenntur yfir þessu. Chesterfield virkar á mig sem flott félag og þetta er sterkari deild en margir myndu halda. Vonandi tekst mér að heilla þá,“ sagði Gary.

Hann kom til Íslands sumarið 2010 og lék með ÍA í tvö ár, uns hann gekk í raðir KR.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×