Innlent

Ákærðir fyrir að afklæða mann og halda honum nauðugum í Hlíðahverfi

Davíð og Ríkharð voru dæmdir í fangelsi árið 2011 í Black Pistons málinu svokallaða.
Davíð og Ríkharð voru dæmdir í fangelsi árið 2011 í Black Pistons málinu svokallaða. vísir/gva
Meðlimir Black Pistons vélhjólagengisins og síbrotamennirnir Ríkharð Júlíus Ríkharðsson og Davíð Fjeldsted (áður Davíð Freyr Rúnarsson), ásamt félaga þeirra, hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, hótanir og frelsissviptingu í desember 2010.

Þremenningunum er gefið að sök að hafa fimmtudaginn 19. desember 2010 í bakherbergi á veitingastaðnum Monte Carlo við Laugaveg í Reykjavík veist að öðrum karlmanni á fertugsaldri og krafið hann um peninga, slegið og sparkað ítrekað í höfuð og líkama hans og svipt hann frelsi sínu í því skyni að þvinga hann til að láta fé af hendi.

Slógu hann ítrekað og helltu upp í hann þvottaefni

Í ákærunni segir að þeir hafi síðan flutt manninn í íbúð í Hlíðahverfi í Reykjavík þar sem þeir slógu hann ítrekað með hnefum, hnúajárnum, kylfu og helltu upp í hann þvottaefni.

Þá hafi þeir brennt hann með sígarettu og hótað að klippa af honum fingur og eyru. Á meðan þessu stóð hafi þeir afklætt manninn og haldið honum fjötruðum og kefluðum yfir nótt í baðkeri í íbúðinni.

Hótuðu að nauðga systur hans

Maðurinn var látinn laus síðdegis 20. desember eftir að faðir hans samþykkti að leggja eina milljón króna inn á bankareikning eins ákærða. Áður en hann var látinn laus hótuðu þremenningarnir honum að ef hann kærði brotin til lögreglu yrði honum og fjölskyldu gert mein. Þar á meðal að honum og systur hans yrði nauðgað.

Af árásinni hlaut maðurinn mar á öxl á upphandlegg, yfirborðsáverka á bakvegg brjóstkassa, brunaáverka á höfði og hálsi, þrjú hringlaga brunasár á aftanverðum hálsi, marga yfirborðsáverka á hálsi, mar á olnboga og yfirborðsáverka á öðrum hlutum höfuðs og mar á hægra auga.

Ríkharð og Davíð voru árið 2011 dæmdir í fangelsi, meðal annars fyrir hrottafengna líkamsárás og frelsissviptingu á hendur tvítugum manni.  Davíð var dæmdur í þriggja ára fangelsi og Ríkharð í þriggja og hálfs árs fangelsi. Þá var Ríkharð einnig dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa kveikt í íbúðarhúsi  að Kleppsvegi 102.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku.


Tengdar fréttir

Black Pistons-menn dæmdir í fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í Black Pistons-málinu svokallaða í morgun. Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, forsprakki samtakanna, hlaut þyngsta dóminn en hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi. Davíð Freyr Rúnarsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi og Brynjar Logi Barkarson fékk sex mánaða dóm. Þá þurfa einnig að greiða fórnarlambinu eina og hálfa milljón í miskabætur.

Unglingur bætist í hóp ákærðu

Réttarhöldin í handrukkunarmálinu gegn tveimur liðsmönnum vélhjólagengisins Black Pistons tóku óvænta stefnu í gær þegar halda átti áfram aðalmeðferð þess í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í ljós kom að fórnarlambið hafði bendlað þriðja manninn við hrottafengna árás á sig og hefur ákæra verið gefið út á hendur honum vegna málsins. Þriðji maðurinn er rétt tæplega sautján ára, og var áður á lista yfir vitni í málinu. Vitað var að hann hefði verið viðstaddur árásina á heimili eins hinna ákærðu, Ríkharðs Júlíusar Ríkharðssonar, forsprakka Black Pistons.

Úrskurðir staðfestir yfir meðlimum Black Pistons

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurði héraðsdóms yfir tveimur meðlimum vélhjólaklubbsins Black Pistons, sem nú gengur undir nafninu Outlaw Prospect, en þeir voru handteknir fyrir skömmu vegna gruns um meiri háttar líkamsárás, húsbrot og frelsissviptingu.

Foreldrar fórnarlambs njóta verndar vegna vélhjólagengis

Foringi vélhjólaklúbbsins MC Black Pistons er einn þeirra sem er í haldi lögreglunnar grunaður um að hafa misþyrmt karlmanni hrottalega á þriðjudaginn. Samkvæmt fréttum RÚV í kvöld þá nýtur fjölskylda fórnarlambsins verndar eftir að tveir meðlimir gengisins á að hafa reynt að hafa reynt að hafa áhrif á rannsókn málsins.

Annar tveggja Black Pistons-manna tók á sig meginsök

Annar tveggja manna sem ákærðir eru fyrir að svipta rúmlega tvítugan mann frelsi sínu í maí 2011, misþyrma honum hrottalega og reyna að kúga út úr honum fé tók á sig meginsök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Foringi Black Pistons í átökum á Litla-Hrauni

Foringi Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, virðist ekki eiga sjö dagana sæla inni á Litla-Hrauni en hann lenti í átökum við tvo pilta á tvítugsaldrinum fyrir skömmu. Samkvæmt heimildum Vísis á Ríkharð að hafa verið skallaður í andlitið af nítján ára samfanga sínum eftir að hann á að hafa ruðst inn í klefa piltsins með það að markmiði að taka rafmagnstæki af honum í leyfisleysi.

Reyndu að kúga út tíu milljónir

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir öðrum tveggja Black Pistons-manna, sem sitja inni fyrir meint ofbeldi, hótanir og frelsissviptingu manns. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 22. september. Félaga hans, sem er jafnframt leiðtogi vélhjólagengisins, var gert að afplána 240 daga eftirstöðvar refsingar.

Foringi Black Pistons: Ekki kallaður nunna - þeir myndu aldrei þora því

"Það hljóp einn náungi að mér og sló mig fyrirvaralaust, segir Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, um átök sem urðu á milli hans og nítján ára pilts á Litla-Hrauni fyrir skömmu. Ríkharð, sem er foringi Black Pistons hér á landi, sem nú heitir Outlaws prospect, segir fyrri fréttaflutning Vísi ekki réttan um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×