Bíó og sjónvarp

Hera hress á rauða dreglinum með hreindýri

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hera, lengst til vinstri, ásamt leikurum myndarinnar.
Hera, lengst til vinstri, ásamt leikurum myndarinnar. vísir/getty
Leikkonan Hera Hilmarsdóttir geislaði á rauða dreglinum þegar kvikmyndin Get Santa var frumsýnd á West End í London í gær.

Hera leikur eitt af hlutverkunum í myndinni sem fjallar um feðga sem ætla að bjarga jólunum þegar þeir finna jólasveininn sofandi í bílskúrnum sínum.

Það er sannkallað stjörnulið sem leikur í myndinni ásamt Heru, eins og Jim Broadbent sem hefur leikið í Harry Potter, Gangs of New York og Moulin Rouge svo fátt eitt sé nefnt, og Warwick Davis sem margir muna eflaust eftir úr þáttunum Life's Too Short sem voru sýndir fyrir stuttu.

Get Santa fer í almennar sýningar í Bretlandi þann 5. desember en óvíst er hvort hún komi alla leið til Íslands. Hér fyrir neðan má sjá stiklu úr myndinni þar sem Heru bregður stuttlega fyrir.

Jim Broadbent.
Warwick ásamt fjölskyldu sinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.