Dómur Bjarna Ármannssonar þyngdur Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 15. maí 2014 14:28 Bjarna er jafnframt gert að endurgreiða tæplega 36 milljónir króna.
Hæstiréttur þyngdi í dag skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Bjarna Ármannssyni úr sex mánuðum í átta mánuði. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Bjarna í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í júní í fyrra. Skattrannsóknarstjóri ríkisins tók mál Bjarna til rannsóknar að eigin frumkvæði og vísaði því síðan til Sérstaks saksóknara. Að auki er Bjarna gert að endurgreiða tæplega 36 milljónir króna. Bjarni lét af störfum sem forstjóri Glitnis árið 2007 og hefur síðan sinnt eigin fjárfestingum. Ákæran gegn Bjarna var í fimm liðum. Hann var í fyrsta lagi ákærður fyrir að hafa vantalið söluhagnað vegna sölu á hlutabréfum í félaginu Sjávarsýn upp á 196 milljónir króna árið 2006. Í öðru lagi var hann ákærður fyrir vegna arðgreiðslan af erlendum hlutabréfum upp á eina og hálfa milljón árið 2006 og rúmlega eina milljón árið 2007. Hann var einnig ákærður vegna vaxtatekna upp á 135 þúsund króna annars vegar og 179 þúsund króna hins vegar. Í fjórða lagi var hann ákærður vegna óframtalinna vaxtatekna vegna reikninga í tveimur erlendum bönkum upp á 1,2 milljónir árið 2006, 2.2. milljónir árið 2007 og tæplega fimm milljónir árið 2008. Loks var hann ákærður fyrir að hafa vantalið tekjur af 36 gjaldmiðlaskiptasamningum, samtals upp á rúmlega 40 milljónir króna. Sýndi af sér stórfellt hirðuleysi Bjarni 2007 og hefur sinnt eigin fjárfestingum síðan. Hann var ákærður fyrir að hafa vantalið söluhagnað vegna sölu á hlutabréfum í félaginu Jávarsýn upp á 196 milljónir króna árið 2006. Bjarni neitaði sök fyrir héraðsdómi. Hann viðurkenndi að hafa látið undir höfuð leggjast að telja fram fjármagnstekjur sínar eins og frá greindi í ákæru á hendur honum. Hann gaf þær skýringar fyrir dómi að hann þegar hafi vantalið fjármagnstekjur sínar hafi verið um handvömm eða mistök að ræða. Tekjurnar sem hann viðurkennir að hafa látið undir höfuð leggjast að telja fram voru skattskyldar samkvæmt lögum um tekjuskatt. Í dómi héraðsdóms kom fram að ekki hefði legið ásetningur að baki brotunum. Hins vegar sé um að ræða stórfellt hirðuleysi eða gáleysi að láta undir höfuð leggjast að telja fram fjármagnstekjur.
Mest lesið Setur háa tolla á Evrópu Viðskipti erlent Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir Neytendur Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Viðskipti innlent Stytta skammarkrókinn til muna Neytendur Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Sjá meira