Lífið

Gengur aftur á bak upp Esjuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vilborg Arna Gissurardóttir og Selma Björk Hermannsdóttir.
Vilborg Arna Gissurardóttir og Selma Björk Hermannsdóttir.
Á morgun, laugardaginn 13. desember, gengur Vilborg Arna Gissurardóttir upp Esjuna - aftur á bak - til styrktar baráttunni gegn einelti. Þetta er hluti af áskorun sem hún tók í tengslum við fjáröflunarátak Barnaheilla - Jólapeysuna.

Í ár er safnað fyrir Vináttu - forvarnarverkefni gegn einelti í leikskóla.

Selma Björk Hermannsdóttir, baráttukona gegn einelti hefur lagt Jólapeysunni lið og ætlar að hvetja Vilborgu áfram og ganga með henni upp - þó ekki aftur á bak.

Selma varð þekkt eftir að hún skrifaði grein um einelti sem hún varð fyrir frá því hún var í leikskóla vegna þess að hún fæddist með skarð í vör. Í framhaldinu fór hún að halda fyrirlestra með föður sínum í skólum. Saga Selmu er táknræn fyrir Vináttu-verkefnið sem verið er að safna fyrir, því hún varð fyrst fyrir barðinu á einelti í leikskóla. Þangað má oft rekja rætur eineltis og þess vegna er afar mikilvægt að hefja forvarnir strax þá.

Vilborg og Selma leggja af stað í birtingu á morgun, eða um klukkan 11 og ætla að safna þannig áheitum. Með þeim í för verða einnig nokkrir aðrir einstaklingar sem styðja baráttuna gegn einelti og aðrir eru einnig velkomnir að slást í hópinn.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Selma fer alla leið upp á topp Esjunnar. Þetta er því mikið afrek hjá þeim báðum, afturgöngunni Vilborgu og Selmu sem fer alla leið á toppinn. Þær eru að leggja ótrúlega mikið á sig til að vinna gegn einelti og eiga svo sannarlega skilið að það skili sér í áheitasöfnuninni.

Áheitasíða Vilborgar má sjá hér.

Einnig er hægt að heita á þær með sms-um: 


1.000 kr. Sendið: 4018 í númerið: 903 1510

2.000 kr. Sendið: 4018 í númerið: 903 1520

5.000 kr. Sendið: 4018 í númerið: 903 1550






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.