Jól

Jólakötturinn er skrýtin jólahefð

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maður vill síður lenda í jólakettinum.
Maður vill síður lenda í jólakettinum.

Vefsíða tímaritsins Time tók saman nokkrar skrýtnar jólahefðir frá löndum víðs vegar um heiminn og komst íslenski jólakötturinn þar á lista.

Í umfjöllun Time segir að jólakötturinn hræði íbúa landsbyggðarinnar, og þá sérstaklega sem ekki fá neitt fatakyns í jólagjöf.

Time segir svo einnig frá því að jólakötturinn sé ekki eina „jólaskrímslið“ á Íslandi þar sem Grýla búi einnig hér og er henni lýst sem þríhöfða skessu með geitahorn.

Aðrar skrýtnar jólahefðir sem Time tiltekur eru til dæmis ítalska nornin La Befana sem tveimur vikum eftir jól deilir út gjöfum til barna sem hafa hagað sér vel og ösku til þeirra sem hafa hagað sér illa.

Þá skreyta Úkraínumenn jólatré sín með köngulóarvefjum og í Japan er sterk hefð fyrir því að fara á skyndibitastaðinn KFC í tilefni jólanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×