Tónlist

Nýtt lag frá Michael Jackson



Nýtt lag frá konungi poppsins og goðsögninni Michael Jackson, var frumflutt í gærkvöldi á iHeartRadio Music Awards, en hátíðin fór fram í Los Angeles. Lagið ber titilinn, Love Never Felt So Good og syngur Jackson þar dúett með Justin Timberlake, ekki amaglegt teymi þar á ferð.

Eins og fyrr segir var lagið frumflutt í gær en það vakti þó athygli að Timberlake var ekki á staðnum, en hins vegar var Usher mættur á sviðið til að dilla sér við lagið, sem er einkar grípandi.

Lagið, sem er samið árið 1983, er eitt af þeim átta lögum sem verða á væntanlegri plötu Jacksons. Platan sem ber nafnið Xscape, kemur út þann 13. maí en þetta er fyrsta platan sem gefin er út í nafni poppkóngsins eftir andlát hans árið 2009.

Á plötunni eru átta áður óútgefin lög sem ýmsir pródúsentar hafa sett í nútímabúning.

Timbaland er aðalpródúsent plötunnar og fær hjálp frá Rodney Jerkins, Stargate, Jerome „Jroc“ Harmon og John McClain.



Justin Timberlake hvatti aðdáendur sína til þess að ljá laginu eyra á Twitter-aðgangi sínum, eins og sjá má hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.