Viðar Örn skoraði og tilnefndur sem framherji ársins Anton Ingi Leifsson skrifar 19. október 2014 19:46 Viðar fagnar marki ásamt liðsfélögum sínum. Vísir/Vålerenga
Viðar Örn Kjartansson skoraði enn eitt markið fyrir Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, en hann skoraði fyrsta mark liðsins í tapi gegn Rosenborg. Viðar Örn hélt uppteknum hætti og kom Vålerenga yfir eftir tíu mínútna leik. Niklas Gunnarsson bætti við öðru marki og staðan orðin 0-2 fyrir Vålerenga. Heimamenn áttu hins vegar eftir að bíta frá sér. Paal Andre Helland minnkaði muninn á 26. mínútu og Mikael Dorsin jafnaði í uppbótartíma í fyrri hálfleik. Fjögur mörk í fyrri hálfleik og mikið um dýrðir á Lerkendal leikvanginum í Þrándheimi.Morten Gamst Pedersen, fyrrum leikmaður Blackburn, kom inná fyrir Rosenborg í síðari hálflelik og hann lagði upp sigurmarkið fyrir Tomas Malec stundarfjórðungi fyrir leikslok. Með sigrinum fer Rosenborg upp í þriðja sæti deildarinnar, en Molde hefur nú þegar tryggt sér titilinn. Vålerenga er í sjötta sæti deildarinnar, tólf stigum á eftir Rosenborg. Þess má geta að Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði allan leikinn í liði Rosenborg. Á föstudaginn var tilkynnt að Viðar kæmi til greina sem sóknarmaður ársins í norsku deildinni. Hann er þar að etja kappi við Daniel Chima Chukwu hjá Molde og Fredrik Brustad hjá Stabæk. Hægt er að taka þátt í kosningurinn hér. Viðar er markahæstur í deildinni með 26 mörk, tólf meira en Alexander Söderlund, fyrrum leikmaður FH.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Sjá meira