Lífið

Tónlistarmaður kvænist fyrirsætu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Adam Levine og fyrirsætan Behati Prinsloo gengu í það heilaga í Los Cabos í Mexíkó í gær. Frá þessu greinir tímaritið Us Weekly.

Um þrjú hundruð gestir fögnuðu með hjónunum, þar á meðal leikararnir Jonah Hill og Jason Segel og fyrirsæturnar Erin Heatherton og Candice Swanepoel. Behati klæddist gullfallegum brúðarkjól frá Marchesa.

Margar af vinkonum Behati sem starfa sem fyrirsætur fyrir Victoria's Secret voru brúðarmeyjar en vinir Adams úr hljómsveitinni Maroon 5 skemmtu gestum. 

Adam og Behati byrjuðu að deita sumarið 2012 en hættu saman í stutta stund nokkrum mánuðum síðar. Þau tóku saman aftur í fyrra og stuttu eftir það fór Adam á skeljarnar.

Nýbökuðu hjónin njóta nú lífsins í brúðkaupsferð í Suður-Afríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.