Lögregla í St. Louis birtir myndband af skotárás Randver Kári Randversson skrifar 21. ágúst 2014 23:07 Lögregla handtekur mótmælanda í Ferguson. Vísir/AP
Lögreglan í St. Louis í Bandaríkjunum hefur birt myndband sem sýnir frá því þegar lögreglumenn skutu til bana hinn 25 ára Kajieme Powell fyrir utan verslun í borginni á þriðjudag. Myndbandið sýnir Powell ganga fram og aftur á gangstétt fyrir utan kjörbúð, en lögreglumennirnir hefja skothríð innan 15 sekúndna eftir að þeir koma á vettvang. Lögreglan segir að eigandi búðarinnar hafi hringt á neyðaraðstoð vegna þess að hann hafi talið að Powell væri vopnaður. Vitni að atvikinu efast hins vegar um að lögreglumennirnir hafi þurft að grípa til þess að skjóta Powell til bana. Þeir hafi frekar getað sært hann eða beitt rafbyssum. Í frétt á vef Guardian segir að lögreglan í St. Louis hafi gert myndbandið opinbert í þeirri von að almenningur gæti gert sér skýra grein fyrir aðstæðum og þannig myndi draga úr líkum frekari óeirðum í borginni. Þessi atburður hafi aukið á þá spennu sem nú ríkir í St. Louis milli lögreglunnar og þeldökkra íbúa borgarinnar í kjölfar þess að lögregla í nágrannbænum Ferguson skaut Michael Brown til bana, sem var 18 ára gamall og óvopnaður. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Við vörum viðkvæma við myndunum.
Mest lesið Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Erlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Innlent Stöðugt gos og engir skjálftar Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Fleiri fréttir Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Sjá meira