Sport

Fékk 12,4 milljóna sekt fyrir að blóta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rex Ryan, þjálfari New York Jets.
Rex Ryan, þjálfari New York Jets. Vísir/Getty
Rex Ryan, þjálfari New York Jets, í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum missti út úr sér miður falleg orð fyrir framan sjónvarpsvélarnar í leik á dögunum og það kostar hann væna sekt.

NFL-deildin ákvað að sekta Rex Ryan um hundrað þúsund dali sem gera um 12,4 milljónir íslenskra króna. Þetta er ekki fyrsta sekt Ryan sem hefur nú þurft að greiða samtals 225 þúsund dollara í sekt á síðustu sex árum.

Rex Ryan missti ljótu orðin út úr sér eftir langþráðan sigur í leik á móti Pittsburgh Steelers en fyrir þann leik hafði New York Jets tapaði átta leikjum í röð.

Rex Ryan náðist á mynd öskra "F--- you!" í átt að einhverjum á vellinum rétt eftir að leiktíminn rann út og hann var að ganga  út á miðjan völl til að þakka þjálfara mótherjanna fyrir leikinn.

„Ég hélt ég væri að segja Takk fyrir (Thank you)," sagði Rex Ryan í léttum tón þegar hann hitti blaðamenn daginn eftir leikinn.

„Það gengur oft mikið á í leikjunum og menn sýna miklar tilfinningar. Það er samt stundum best að skilja það sem gerist á vellinum eftir á vellinum. Ég þarf samt að standa mig betur að stjórna þessum tilfinningum. Ég biðst afsökunar á því ef ég hef móðgað einhvern," sagði Rex Ryan.

Rex Ryan er mjög litríkur persónuleiki, vinsæll meðal fjölmiðlamanna og hann hefur einnig fengið lítil hlutverk í kvikmyndum enda einn þekktasti þjálfarinn í NFL-deildinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×