Vilt þú vera boðberi hreyfingar? Sabína Steinunn Halldórsdóttir skrifar 16. september 2014 10:38 Hver er þín uppáhaldshreyfing? Talið er að um 600.000 þúsund dauðsfalla í Evrópu megi rekja beint til hreyfingarleysis. Flestir sem hreyfa sig ekki segja ástæðuna vera peningaskort. Það er margt hægt að gera til að bæta lífsgæði sem hvorki kostar krónu né fyrirhöfn. Mestu máli skiptir að hafa gaman af hreyfingunni sinni því það eykur líkurnar á því að maður viðhaldi heilbrigðum lífsstíl. Það eru skilaboðin í samfélaginu og boðskapurinn sem skiptir máli. Frá því að við vöknum á morgnana og förum að sofa á kvöldin þá erum við að hreyfa okkur og öll hreyfing telur. Hins vegar þurfum við að fá hjartað til að pumpa duglega að minnsta kosti í 30 mínútur á dag til að endurnýja frumurnar okkar og þannig bæta heilsuna – helst 60 mínútur á dag. Alltof margir velja kyrrsetulífsstíl í stað þess að uppfylla ráðlagðan dagskammt. Við pössum okkur að hafa símann okkar vel hlaðinn til að hann nýtist yfir daginn en hvað með líkamann okkar – hans hleðsla er hreyfing, holl næring og góður svefn. Hvernig fáum við fleiri til að hreyfa sig? Alls staðar í heiminum er reynt að finna töfralausnina og það á einnig við um Hreyfivikuna, Move Week, sem fer fram um gjörvalla Evrópu dagana 29. september til 5. október 2014 – en bara aðeins öðru vísi! Hreyfivikan Move Week er herferð International Sport and Culture Association (ISCA) sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að hreyfa sig reglulega. Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) er aðili að ISCA og tekur þátt í verkefnum samtakanna. Framtíðarsýn herferðarinnar er „að 100 milljónir fleiri Evrópubúa verði orðnir virkir í hreyfingu og/eða íþróttum fyrir árið 2020“. Það sem er öðru vísi við þessa herferð er að hún er ekki sniðin að ákveðinni íþrótt eða hreyfingu. Allir geta klæðskerasniðið sína Hreyfiviku og nýtt til þess þá kosti sem samfélag þeirra býr yfir til að smita frá sér jákvæðri nálgun á hreyfingu. Sambandsaðilar UMFÍ, sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki um allt land, taka þátt í Hreyfivikunni. Fjöldi viðburða og tækifæra verður um allt land til að kynna sér fjölbreytta hreyfingu. Því er um að gera að fylgjast með á http://www.iceland.moveweek.eu/. UMFÍ hefur fengið til liðs við sig Trópí og Nettó sem munu hvetja almenning í Hreyfivikunni og hafa appelsínugular heilsuvörur á tilboði í lit herferðarinnar. Vilt þú vera boðberi hreyfingar? Skráðu þig sem boðbera á heimasíðunni og bjóddu upp á viðburð, því saman getum við gert frábæra hluti. Áfram við, öll! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Valdatafl Skák og Mát! Lárus Guðmundsson Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði Kristrún Frostadóttir Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson Skoðun Viðbrögð við vanlíðan ungmenna Sandra Björk Birgisdóttir Skoðun En hér er ég ekkert... Nichole Leigh Mosty Skoðun Við getum ekki beðið í 131 ár Jódís Skúladóttir Skoðun Nýtt upphaf hjá Vinstri grænum Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Laxalús og varnir gegn henni Jón Sveinsson skrifar Skoðun En hér er ég ekkert... Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Við getum ekki beðið í 131 ár Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Nýtt upphaf hjá Vinstri grænum Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Viðbrögð við vanlíðan ungmenna Sandra Björk Birgisdóttir skrifar Skoðun Valdatafl Skák og Mát! Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun FO: Hvernig getur þú skipt sköpum fyrir konur í Súdan? Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Við stöndum saman með réttindum táknmálsins! Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali? Þorbjörrg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Halldóra Mogensen,Eva Sjöfn Helgadóttir skrifar
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar