Tónlist

Tónlistarkonan Una Stef með nýtt lag



Tónlistarkonan Una Stef var að senda frá sér lag á dögunum sem ber nafnið, I’ll Be Here. Þetta er annað lagið sem Una gefur út af væntanlegri sólóplötu hennar sem kemur út í byrjun maí.

Platan mun innihalda lög og texta eftir Unu sjálfa. Tónlistin hennar er popp með R&B áhrifum. Lagið I’ll Be Here var samið fyrir nokkrum árum og segir Una ástarsorg hafa verið aðal innblástur lagsins.

„Þetta lag var það eina sem lifði áfram úr sambandinu og mér þykir ofboðslega vænt um það. Það er smá dramatík í því enda getur unglingsástin verið rosalega flókin og erfið," segir Una spurð út í lagið.

Áhugasamir geta kíkt á lagið og Unu á facebooksíðu hennar. Þá er myndband af Unu taka lagið í þættinum Þriðjudagskvöld með Frikka Dór.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×