Sport

Reyndi að greiða fyrir vörur með tyggjói

Dwayne Gratz.
Dwayne Gratz. vísir/getty
Jacksonville Jaguars var í fríi um síðustu helgi og einn leikmaður liðsins nýtti tækifærið og skemmti sér í Miami. Hann reyndar skemmti sér fullvel.

Varnarmaðurinn Dwayne Gratz fór á heljarinnar skrall af gamla skólanum með félögum sínum í Miami. Það átti eftir að enda illa.

Rétt fyrir sex aðfararnótt sunnudags var Gratz mættur í kjörbúð að næla sér í helstu nauðsynjar. Er kom að því að borga vandaðist málið.

Gratz var ekki með neina peninga á sér. Hann er þó greinilega maður sem hugsar í lausnum því varnarmaðurinn bauðst til þess að greiða fyrir vörurnar með tyggigúmmi.

Einhverra hluta vegna var því kostaboði ekki tekið. Þá brjálaðist Gratz og neitaði að yfirgefa búðina fyrr en tilboðinu væri tekið.

Var þá lítið annað í stöðunni en að hringja á lögregluna. Hún bað Gratz nokkrum sinnum um að yfirgefa búðina en hann haggaðist ekki. Þá var Gratz handtekinn og fékk að sofa úr sér í steininum.

Félag hans mun refsa honum í vikunni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×