Bíó og sjónvarp

James Franco skandallinn jafnvel hluti af auglýsingaherferð

James Franco
James Franco Vísir/Getty
Bandaríski leikarinn James Franco viðurkenndi í síðustu viku að hafa reynt við unglingsstúlku á samskiptamiðlinum Instagram.

Leikarinn hitti hina sautján ára gömlu Lucy Clode fyrir utan leikhús í New York eftir leiksýningu á verkinu Mýs og menn, en Franco fer með hlutverk í sýningunni. Í kjölfarið hófu þau að tala saman á ljósmyndavefnum Instagram.

Nú eru uppi sögusagnir um að uppátækið hafi verið hluti af vafasamri markaðsherferð fyrir Palo Alto, nýja kvikmynd sem byggð er á smásagnasafni eftir Franco sjálfan.

Ein sagan úr safninu fjallar um unga stúlku, April, sem leikin er af Emmu Roberts, sem á í ástarsambandi við fótboltaþjálfarann sinn, Mr. B, sem leikinn er af Franco. Sambandið er sýnt í stiklu úr kvikmyndinni sem var gefin út þann 2. apríl. 

Franco viðurkenndi í þættinum Live with Kelly and Michael að hafa reynt við stúlkuna og sagðist hann skammast sín.

„Ætli ég sé ekki dæmi um það hversu snúnir samskiptamiðlarnir geta verið,“ sagði leikarinn og bætti því við að viðreynslan hefði verið dómgreindarbrestur og að hann hefði lært sína lexíu.

Palo Alto er leikstýrt af Gia Coppola og verður sýnt í kvikmyndahúsum vestanhafs þann níunda maí.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.