Lífið

Stjörnulífið: Ára­mót, kossaflens og þakk­látar stjörnur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það var sannkölluð áramótabomba hjá stjörnum landsins í liðinni viku.
Það var sannkölluð áramótabomba hjá stjörnum landsins í liðinni viku.

Nýtt ár er gengið í garð 2025 og virðist það falla vel í kramið hjá stjörnum landsins ef marka má færslur þeirra á samfélagsmiðlum síðastliðna daga. Tímamótatilkynningar, heilsusamleg markmið og þakklætispistlar þar sem farið er yfir liðið ár eru áberandi ásamt fallegum myndum.

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson sendir fylgjendum sínum kærleikskveðju.

Stórstjarnan Lafey Lín flaug til Íslands frá Bandaríkjunum til að fagna nýja árinu með fjölskyldu sinni.

Poppkongurinn Páll Óskar Hjálmtýsson kveðst aldrei hafa verið hamingjusamari.

Hildur Sif Hauksdóttir áhrifavaldur tók á móti nýja árinu í faðmi kærastans Páls Orra Pálssonar.

Sunneva Einars áhrifavaldur og raunveruleikastjarna kvaddi gamla árið með mágkonu sinni, Helgu Bjarnadóttur.

Hlaupa­kon­an Mari Järsk og kær­asti henn­ar, Njörður Lúðvígsson kvöddu gamla árið með bros á vör.

Helgi Ómarsson, áhrifavaldur og ljósmyndari, og Pétur Björgvin Sveinsson markaðssérfræðingur tóku á móti nýja árinu á nýju heimili. en parið festi kaup á fallegri íbúð við Sólvallargötu í gamla vesturbænum í Reykjavík síðastliðið vor.

Listakonan Elín Sif Hall kveðst þákklát fyrir árið sem leið.

„Ég væri ekki listamaður án þeirra sem þiggja afurðina - úr mér streymir bara þakklæti,“ segir meðal annars í færslu Elínar.

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Elísabet Gunnars fór með fjölskyldunni til Madeira á Portúgal á milli jóla og nýárs til að fagna áramótunum.

Katrín Edda Þor­steins­dótt­ir, verk­fræðing­ur og áhrifavaldur, fagnaði nýja árinu í Þýskalandi ásamt eiginmanni sínum og börnum.

Móeiður Lárusdóttir áhrifavaldur og Hörður Björgvin Magnússon knattspyrnumaður tóku á móti nýja árinu heima á Íslandi, en fjölskyldan er búsett á Grikklandi.

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal segir að nýja árið muni „reddast.“

Kírópraktor­inn Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son, betur þekktur sem Gummi kíró, segir að liðið ár hafi verið frábært.

Hápunktur ársins hjá Evu Lauf­eyju Kjaran Her­manns­dótt­ur, markaðs- og upp­lif­un­ar­stjóra Hag­kaups og Har­ald­ar Har­alds­son­ar, deild­ar­stjóra Icelanda­ir Cargo, var koma þriðju dóttur þeirra, Margrét Maren, sem kom í heiminn í júní.

Camilla Rut Rúnarsdóttir áhrifavaldur fer með hálf fullt glas inn í nýja árið.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segist alltaf hafa skemmt sér í vinnunni.

kærustuparið Heiður Ósk Eggertsdóttir og Davíð Rúnar njóta lífsins í Marokkó þessa dagana.

Manuela Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland og Eiður Birgisson fara ástfangin inn í nýja árið.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan

Hátíðarandinn svífur yfir landsmönnum og aðeins einn dagur til jóla. Stjörnur landsins eru sannarlega komnar í jólaskapið og voru duglegar að deila skemmtilegum augnablikum á samfélagsmiðlum yfir liðna viku.

Stjörnulífið: IceGuys tryllingur og 26 ára amma

Stjörnur landsins nutu lífsins í vikunni sem er að líða. Jólin nálgast og hitastigið er á leiðinni niður sem ýtti undir hátíðarstemninguna.Það var líka nóg um að vera. Aðventan í algleymingi og einir stærstu tónleikar landsins með strákunum í Iceguys. Þá naut fólk lífsins á ýmsa vegu í faðmi fjölskyldunnar og sumir klæddu sig í rautt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.