Tónlist

Brot úr nýju lagi frá Ed Sheeran

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran er búinn að setja bút úr nýja laginu sínu, Sing, á YouTube og lofar þetta litla sýnishorn mjög góðu.

Ed frumflytur lagið í heild sinni í kvöld á BBC Radio 1 í þætti Zane Lowe. Lagið er af annarri plötu kappans sem heitir X og kemur út þann 23. júní næstkomandi.

Þá verður hægt að senda Ed spurningar í kvöld á Twitter með kassmerkinu #EdSing eins og söngvarinn tilkynnti á Twitter-síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×