Héraðssaksóknarar munu rannsaka efnahagsbrotamál Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. nóvember 2014 17:09 Héraðssaksóknari mun rannsaka efnahagsbrotamál. vísir/daníel
Gert er ráð fyrir að stofnað verði héraðssaksóknaraembætti (saksóknar- og lögregluembætti), í drögum að nýju lagafrumvarpi sem er í smíðum í dómsmálaráðuneytinu. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að hið nýja héraðssaksóknaraembætti fari með ákæruvald vegna flestra þeirra brota sem ríkissaksóknari fer nú með ákæruvald fyrir héraðsdómi. Einnig er gert ráð fyrir að embættið fari með rannsókn og saksókn alvarlegra skattalaga- og efnahagsbrota, brota gegn valdstjórninni og brota starfsmanna lögreglu. Embættið leysi þannig af hólmi embætti sérstaks saksóknara og héraðssaksóknaraembætti sem gert var ráð fyrir að yrðu stofnuð með lögum númer 88/2008. Frumvarpið var samið á vegum réttarfarsnefndar að frumkvæði dómsmálaráðherra. Meðal annars á grundvelli minnisblaðs stýrihóps um mótun réttaröryggisáætlunar og vinnuhóps um framtíðarskipan ákæruvalds. Tilgangur frumvarpsins er fyrst og fremst að kveða á um framtíðarskipan ákæruvalds hér á landi og breytingar á fyrirkomulagi rannsókna á efnahagsbrotum. Auglýst hefur verið eftir umsögnum um frumvarpið og á vef innanríkisráðuneytisins segir að hægt sé að senda umsagnir til 21. nóvember.
Mest lesið Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Innlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent Tuttugu manns í rútuslysi Innlent „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf Innlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku Erlent „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Innlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent Fleiri fréttir „Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Sjálfstæðisflokkurinn þurfi ferskt upphaf „Gríðarlegt högg“ ef bannið varir til frambúðar Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráðabirgðalögum Vopnahlé og ákvörðun tekin um rýmingu á Austfjörðum Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Tuttugu manns í rútuslysi Háskólinn, Hvammsvirkun og Sjálfstæðisflokkurinn á Sprengisandi Landið mest allt gult í dag Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ E. coli fannst í neysluvatni Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Snarpur skjálfti við Trölladyngju Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir Veðurviðvaranir og vegalokanir Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Sjá meira