Tónlist

Kött Grá Pje og Jónas Sig með nýtt lag

Tinni Sveinsson skrifar
Tónlistarmennirnir Kött Grá Pje og Jónas Sigurðsson sendu frá sér fyrr í dag glænýtt lag, Eilífðar smáblóm, sem þeir sömdu fyrir leikritið Útlenski drengurinn.

Þetta er brakandi ferskt lag en Jónas semur hljóðmyndina í Útlenska drengnum, sem verður frumsýndur í Tjarnarbíó á sunnudag. Kristjana Stefánsdóttir syngur einnig í laginu en hljóðblöndun og frágangur þess var í höndum Styrmis Haukssonar.

Verkið er byggt á hugmynd úr léttlestrarbók sem Þórarinn gerði fyrir námsgagnastofnun 2011.Mynd/totil.com
Útlenski drengurinn er gamanleikur með alvarlegum undirtóni eftir Þórarinn Leifsson rithöfund. Verkið er sett upp af leikhópnum Glennu. Það er ætlað bæði ungu fólki og fullorðnum en þeir sem þekkja til verka Þórarins vita að í þeim leynist oft lúmsk ádeila á íslenskt samfélag.

Dóri DNA fer með aðalhlutverkið í sýningunni en í henni leikur hann einmitt Dóra litla.

„Dóri er vinsælasti strákurinn í bekknum þangað til hann er látinn taka svokallað Pítsa próf sem snýr öllu lífi hans á hvolf. Hann er sviptur grundvallar mannréttindum og látinn bíða örlaga sinna innilokaður í myrkvaðri skólastofu. Verkið veltir upp spurningum um ríkisfang, einelti og þá tilfinningu að upplifa sig utangarðs,“ segir í lýsingu um Útlenska drenginn.

Aðrir leikarar í sýningunni eru Þorsteinn Bachmann, María Heba Þorkelsdóttir, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir og Benedikt Karl Gröndal. Vigdís Jakobsdóttir leikstýrir.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af leikhópnum af Facebook-síðu Tjarnarbíós en hægt er að nálgast miða og nánari upplýsingar á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.