Lífið

Klum keypti hús handa fyrrum tengdamóður sinni

Heidi Klum og Martin Kirsten á meðan allt lék í lyndi.
Heidi Klum og Martin Kirsten á meðan allt lék í lyndi.
Heidi Klum og fyrrum kærasti hennar, Martin Kirsten, hættu saman í janúar en Klum ákvað engu að síður að fjárfesta í húsnæði handa móður hans á dögunum.

Slúðurmiðlarnir vestanhafs telja að ástæðan sé sú að Klum hafi ekki viljað að Martin myndi tjá sig á nokkurn hátt um sambandsslit þeirra og að fjárfestingin hafi verið hennar leið að þagga niður í sínum fyrrverandi.

Talið er að Martin hafi gefist upp á 18 mánaða sambandi hans og Klum vegna þess að hann hafi fengið nóg af því að sjá um heimilishaldið á meðan fyrirsætan vann fyrir þeim himinháu tekjum sem hún fær fyrir módelstörfin. Þá hafi hann nánast alltaf séð um að passa fjögur börn Klum og fyrrum eiginmanns hennar, söngvarans Seal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.