Tónlist

Stóns með tvenna tónleika á Íslandi

Stóns kunna svo sannarlega að bregða sér í líki Rolling Stones.
Stóns kunna svo sannarlega að bregða sér í líki Rolling Stones. Mynd/einkasafn
„Við vildum gera eitthvað stórt og mikið og nú er allt að gerast,“ segir Björn Stefánsson Jagger, söngvari hljómsveitarinnar Stóns sem leikur lög til heiðurs Rolling Stones. Fyrirhugaðir eru tvennir stórir tónleikar, annars vegar þann 4. október í Háskólabíói og þann 10. október í Hofi á Akureyri.

„Þetta hefur alltaf verið að stækka hjá okkur með hverju árinu. Fyrsta giggið okkar var á Players árið 2009 en nú er það Háskólabíó og Hof,“ bætir Bjössi við.

Hljómsveitina Stóns skipa ásamt Bjössa þeir, Bjarni Magnús Sigurðarsson gítarleikari, Birgir Ísleifur Gunnarsson píanóleikari, Karl Daði Lúðvíksson bassaleikari og Frosti Runólfsson trommuleikari, en þeir eru allir vel kunnir tónlistarbransanum.

Bjössi er líklega best þekktastur fyrir að vera trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hvort er skemmtilegra að sitja á bak við settið eða vera fremst á sviðinu? „Þetta er
ólíkt en bæði ótrúlega skemmtilegt. Ég hafði ekki mikið sungið áður en Stóns var stofnuð, nema bara í sturtu og svona. Andrea Jónsdóttir plötusnúður kenndi mér svo að halda rétt á míkrafóni fyrir fyrsta giggið okkar,“ útskýrir Bjössi.

Stóns varð upphaflega til sem einhvers konar grín í partýi. „Ég og Bjarni vorum oftast fíflast í partýjum á árum áður, ég var sagður vera svo líkur Mick Jagger og ákváðum við bara að kýla á alvöru hljómsveit.“

Stóns ætla sér að leika öll helstu lög Rolling Stones og lofa frábærum tónleikum. „Ég lofa geggjuðum tónleikum.“

Miðasala á tónleikana fer fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.