Heilsa

Snípurinn

Sigga Dögg kynfræðingur skrifar
Örvun snípsins er lykilinn að fullnægingu fyrir flestar konur.
Örvun snípsins er lykilinn að fullnægingu fyrir flestar konur. Mynd/Getty
Það er skylda mín að fræða alls íslendinga, nær og fjær, um kynferðislegan unað. Þar sem maí er mánuður sjálfsfróunar, þá er um að gera að spjalla smá um snípinn. Alltof margir vita ekki hvar hann er eða hvað hann gerir svo lestu nú og breiddu út boðskapinn og fagnaðarerindið.

  1. Snípurinn er talinn vera með taugar/rætur sem liggja inni í leggöngin, meðfram börmunum og niður að endaþarmsopinu. Því er aðeins hluti af honum sýnilegur.
  2. Snípurinn er alltaf efst á píkunni. Hann fer aldrei á flakk eða leynist inni á rassinum.
  3. Einstaklingsbundið útlit er á snípnum og hann getur verið misstór 
  4. Svokölluð hetta ver snípinn og þegar hann er örvaður draga sumir hettuna frá en aðrir nudda snípinn með hettuna yfir honum.
  5. Flestir taugaendanna liggja í snípnum og er hann því talinn næmasti staður líkamans
  6. Snípurinn stækkar við kynferðislega örvun og í rauninni fær „bóner”
  7. Snípurinn smyr sig ekki sjálfur svo hann þarf að smyrja áður en er nuddaður eða strokinn, með bleytu úr píkunni eða sleipiefni
  8. Snípurinn er sérhannaður fyrir kynferðislega ánægju og hefur engan annan tilgang
  9. Fósturfræðilega er snípurinn búin til úr sama vef og kóngurinn á typpi
  10. Fjöldi erlendra rannsókna sýna að flestar konur fá kynferðislega fullnægingu með örvun á snípnum.
  11. Snípinn er því gott að örva í forleik, á meðan á samförum stendur og jafnvel eftir að þeim er lokið (ef viðkomandi er ekki þegar búin að fá nóg) og mundu eftir að smyrja hann áður en þú nuddar eða strýkur
  12. Freud taldi snípinn gefa barnalega fullnægingu en fullorðnar konur ættu að fá fullnægingu með örvun legganga. Þetta er ekki svo. Þeir sem aðgreina á milli leggangafullnæginga og snípsfullnæginga gætu verið að örva snípinn óbeint því rætur hans liggja inn eftir leggöngum. Það þarf ekkert að aðgreina á milli fullnæginga, hún er bara góð, sama hvaðan hún kemur.
  13. Við kynfæragötun er snípshettan götuð og lokkur settur í hana en ekki snípurinn sjálfur. Sumum finnst þetta auka á kynferðislegan unað.
  14. Notkun á sterum getur stækkað snípinn.  
Finnst þér þetta ekki stórmerkilegt? 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.