Menning

ReykjavíkBarokk með háskólatónleika

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Kvennahópurinn ReykjavíkBarokk kemur fram á tónleikum í Háskóla Íslands í dag.
Kvennahópurinn ReykjavíkBarokk kemur fram á tónleikum í Háskóla Íslands í dag. mynd/einkasafn
„Við höfum æft mikið að undanförnu og hlökkum mikið til,“ segir Guðný Einarsdóttir organisti og semballeikari í kvennahópnum ReykjavíkBarokk sem kemur fram á tónleikum í dag. ReykjavíkBarokk flytur verk eftir Georg Philipp Telemann og Giovanni Battista Bononcini á háskólatónleikunum sem fram fara í kapellunni í aðalbyggingu Háskóla Íslands.

Kvennahópurinn ReykjavíkBarokk var stofnaður árið 2012 og sérhæfir sig í flutningi á barokktónlist. „Við leggjum metnað okkar í að flytja tónlistina á upprunaleg hljóðfæri og til dæmis má nefna að ekki heyrist oft í barokkflautu og gömbu hér á landi.“ útskýrir Guðný.

Hópinn skipa þær Jóhanna Halldórsdóttir, alt, Helga Aðalheiður Jónsdóttir blokkflauta, Magnea Árnadóttir barokkflauta, Diljá Sigursveinsdóttir og Íris Dögg Gísladóttir barokkfiðlur, Ólöf Sigursveinsdóttir, barokkselló, Kristín Lárusdóttir, víóla da gamba og Guðný Einarsdóttir, semball.

„Við erum með háskólatónleika af og til hjá okkur en í vetur bjóðum við upp á sex tónleika og eru þetta fimmtu tónleikarnir í röðinni,“ segir Kristín Ása Einarsdóttir viðburðastjóri Háskóla Íslands um tónleikaröðina. Hún bætir við að kapella skólans sé einkar hljómfögur og taki um hundrað manns í sæti. „Það er mjög góður hljómburður í kapellunni og hlökkum við mikið til tónleikana,“ segir Kristín Ása.

Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.