Lífið

Selur bæði blóm og sjálfan sig

Blómasalinn þurfti að hugsa sig um áður en hann tók ákvörðunina um að selja líkama sinn.
Blómasalinn þurfti að hugsa sig um áður en hann tók ákvörðunina um að selja líkama sinn.
John Turturro hefur vermt hjörtu margra kvikmyndaáhugamanna í gegnum tíðina með hjartnæmum myndum sem hann skrifar, leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í. Nýjasta mynd hans, Fading Gigolo, er þar engin undan- tekning.

Myndin skartar úrvalsleikurum á borð við John Turturro sjálfan, Woody Allen, Sharon Stone, Vanessu Paradis, Sofíu Vergara og Liev Schreiber en Turturro leikur hér hinn lítilláta og tiltölulega hlédræga blómasala Fioravante í New York.

Dag einn kemur til hans góður vinur, hinn síblanki Murray, og segir honum að hann hafi hitt konu sem sé tilbúin að greiða þúsund Bandaríkjadali fyrir nótt með manni sem er fær um að uppfylla kynlífsdrauma hennar.

Murray, sem bráðvantar peninginn, ákveður að biðja Fioravante um að taka að sér verkefnið, fullviss um að hann valdi því auðveldlega. Sjálfur er blómasalinn þó efins um að hann sé rétti maðurinn til að sinna konunni en ákveður að lokum að láta á það reyna, aðallega samt til að hjálpa Murray að rétta úr kútnum fjárhagslega.

Í ljós kemur að Fioravante leynir á sér í rekkjubrögðunum og reynist hinn fullkomni elskhugi og opnar það um leið möguleika Murrays á að næla sér í meiri peninga og drífur hann til að afla þeim félögum frekari viðskipta á sama sviði.

Athæfið reynist tiltölulega auðvelt og vindur fljótt upp á sig. Málin byrja hins vegar að flækjast þegar Fioravante verður ástfanginn af einum viðskiptavininum, hinni einmana ekkju Avigal.

Rómantíska gamanmyndin hefur þegar fengið misjafna dóma gagnrýnenda en hún verður frumsýnd í Sambíóunum 29. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.