Tónlist

Fönkaðir fimmtudagar á Loftinu

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Tónlistarmenn úr ýmsum áttum ætla að sjá til þess að það verði góð stemning á Loftinu öll fimmtudagskvöld í sumar.
Tónlistarmenn úr ýmsum áttum ætla að sjá til þess að það verði góð stemning á Loftinu öll fimmtudagskvöld í sumar. Mynd/Brynjar Snær
„Áherslan í Reykjavík undanfarið hefur kannski verið örlítið meira á elektrónískum nótum. Við vildum því keyra á nýja stemningu,“ segir Andrés Nielsen, plötusnúður og einn af hugmyndasmiðunum á bak við skemmtileg fimmtudagskvöld á Loftinu í Austurstræti í sumar en þar ætla þekktir tónlistarmenn og plötusnúðar að leiða saman hesta sína.

„Þetta hefst allt núna á fimmtudaginn með smá upphitun en stóra startið verður 10. júlí þegar Loft-band Steinars Sigurðssonar spilar ásamt DJ King Lucky,“ segir Andrés og segir kvöldin í raun minna um margt á það sem skemmtistaðurinn Rex bauð upp á hér um aldamótin þegar tónlistarmenn spiluðu „live“ með plötusnúðum.

Fjölmargir þekktir tónlistarmenn eru á meðal þeirra sem taka þátt í tónleikaröðinni en þar má meðal annars nefna þá Samúel Jón Samúelsson, kenndan við Jagúar, Arnljót Sigurðsson og Teit Magnússon úr hljómsveitinni Ojba Rasta og Gísla Galdur.

„Við ætlum í raun bara að skapa gott og fönkað partí hér á Loftinu,“ segir Andrés.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.